Tuesday, August 29, 2006

Miami Vice

AEtla bara ad rita her orsnoggt ad eg er EKKI thunglynd i dag!
Er nebbla ad skundast i bio med indaelis folki, bornum og tengdadottur Lau-Tai. AE, ef eg aetti thau ekki ad!
Madame Lau-Tai baud mer inn til sin i dag. Hun er med skjaldbokur a svolunum og kinverska muni ut um allt auk thess sem madurinn hennar safnar bilamodelum og husid er fullt af alls kyns skondnum munum. Thau hjonin eru baedi half kinversk og half kreolsk. Unadslegt folk.
Skotuhjuin Nicolas og Gwen eru sambùendur minir. Thau eru 19 ara og eru baedi hedan af eyjunni, voru ad byrja sitt fyrsta ar i haskola, blessunirnar. Thau eru agaetur felagsskapur.
Annars er her vetur nuna. Ferskur vindur blaes a milli thess sem madur svitnar i steikjandi vetrarsolinni. Borgin er stadsett i grodursaelli hlid eda fjalli og er samastadur minn i midri brekkunni. Svo ma sja Indlandshaf fyrir nedan blatt og fullt af hakorlum. Fyrsta daginn sem eg var her var forsidufrett af brimbrettadreng sem hafdi misst handlegginn i hakarlsgin, og i gaer missti einn loppina. Thad eru sumse 2 sidan eg kom hingad fyrir viku! En hafid ekki ahyggjur, eg skal gera mitt besta til ad vara mig a theim.
Moskitoflugurnar eitrudu hafa ekki enn latid a ser kraela sokum kulda.

Alltent, sendi ykkur bestu kvedjur a thessum skyjada degi.

Monday, August 28, 2006

Angist

Jahau, her er eg. Ekki ber a odru.

Full angistar geng eg um gotur Saint-Denis borgar, a hvolfi midad vid ykkur. Nokkud magnad finnst ykkur eflaust, en thad finnst mér ei. Enn um sinn finnst mér thad angistarfullt og eg sakna fosturjardar minnar saran.
Vissulega hef eg upplifad her undanfarna viku indaelar stundir. Eg hefi kynnst nokkrum indaelum Réunion-bùum. Medal annars er konan sem leigir mer, Madame Lao-Tai, med indaelasta moti og alltaf reidubuin ad hjalpa mer. Hun er litil og alltaf blamalud um augun og i gaer kom hun aftan ad mer og skellti lett a rasskinn mina thegar eg var ad vaska upp. Thad thotti mer vinalegt.
Fyrstu nottina her a landi gisti eg a Hotel Cap Vert, en thar kynntist eg lika indaelu folki sem hjalpadi mer ad finna samastadinn minn goda. Eg er mjog svo satt vid tha akvordun ad hafa leigt utan studentagardanna. Eilitid hef eg umgengist adra skiptinema og thotti mer thad ekki i frasogur faerandi. Eg hef farid med theim i tvaer strandarferdir sem var svosum ekki slaemt, en svosum ekkert i frasogur faerandi heldur. Theim thykir bara afskaplega gaman ad tala thysku og svo eru thau ad sjalfsogdu ekki nogu toff fyrir vidurstyggilegan personuleika minn. Eg at med theim a studentagordunum eitt kveldid og thar var trodfullt eldhus af brjostgodum thyskum thokkagydjum og fronskum storloxum og stemmningin eftir thvi. Ae ae ae.
Gulli kemur hingad eftir 2 vikur og tha hverfur vonandi einmanaleikinn, og svo lidur ad thvi ad skolinn byrji, tho eg hafi ekki hugmynd um hvenaer, og tha hefur madur tho alltent fastan punkt i liferni sinu her.
Alltent. Eg heiti thvi ad bloka jakvaedari faerslu naest!
Thid erud yndin min!!!