Wednesday, March 07, 2007

æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ

Við erum sveitt í Tamatave.

Á morgun verðum við í loftræstri lúxusferju. Það verður magnað. Fyrsta flokks þjónusta, forréttir og eftirréttir, mjúk rúm, heitar sturtur.... Æ, hvursu indælt. Við munum njóta þess til fullnustu að vera smáborgarar.

Þetta er undarlegt, en samt ekki eins undarlegt og maður hefði haldið. Kannski er ég vaxin upp úr því að finnast undarlegt að tíminn skuli líða. Hvur veit. Ég er jú orðin svo fullorðin.... Átti alltaf eftir að tjá mig um það að hér á Madagaskar byrjaði ég að geta drukkið kaffi! Hvar mun þetta enda?

æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ æ

8 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Eg mun njota thess ad drekka med ther kaffibolla i Reykjavik thegar thu snyrd aftur, Katla min.
Kvedja fra Zurich.

7.3.07  
Anonymous Anonymous said...

Einn vænan latte hérna megin!
Sjah!

7.3.07  
Blogger Rúna Björg said...

ÆÆ, segir amma þín! (Reyndar sagði hún ój barasta, en það er nú varla hægt að hafa það eftir á svona dannaðri bloggsíðu.) Hún er að eigin sögn ekki enn búin að venja sig á kaffidrykkju (lýgur því að vísu - enda drekkur orðið kaffi með rjóma og ónefndum vökva á kvöldin eins og þið vitið.) Hún nótmælir því og segist drekka það mjög sjaldan.

Hvað um það - nei Katla ég held að maður vaxi aldrei upp úr því að finnast tíminn líða. Er ekki bara svona gaman að vera til?

Alla vega góða ferð og njótið ferðarinnar!
Rúna Björg og mamma hennar

7.3.07  
Blogger Híalín said...

Jæja "gamla" mín!!!!!OJOJOJOJO
Kaffi er ekki bara kaffi.......
Knús til ykkar og njótið þess að vera til.

7.3.07  
Anonymous Anonymous said...

hæ, hæ
voða gott að heyra frá ykkur. segir gamla kaffikerlingin hún mamma kötlu sem er í fatla en samt að skána í handlegg

7.3.07  
Anonymous Anonymous said...

Njehehaha! Bíð S P E N N T eftir ykkur á ReUnion. Það verður sko reunion í lagi, himpigimpin ykkar. Og eitthvað annað drukkið en kaffi. Bíðiði bara. Tryllingurinn er rétt að byrja!

7.3.07  
Anonymous Anonymous said...

Hun katla litla er ordin fullordin, gnjoooo.

7.3.07  
Anonymous Anonymous said...

Gott að vita til þess að þið farið senn að nálgast gamla Ísland, elskurnar mínar.

9.3.07  

Post a Comment

<< Home